Upplýsingar um tillögur vegna sameiningar Almenna – Lífsverks og SL lífeyrissjóðs
Upplýsingavefur
Almenni – Lífsverk og SL lífeyrissjóður hafa opnað sameiginlegan upplýsingavef í tengslum við tillögur stjórna sjóðanna um sameiningu þeirra. Markmiðið er að veita sjóðfélögum skýrar og aðgengilegar upplýsingar um málið.
Á vefnum er m.a. fjallað um:
- Markmið með sameiningu sjóðanna.
- Samrunaferlið og helstu dagsetningar.
- Hverjar helstu breytingarnar verða fyrir sjóðfélaga ef sameining sjóðanna verður samþykkt.
Sameining – upplýsingavefur Almenna – Lífsverks og SL lífeyrissjóðs.
Kynningarfundur
SL lífeyrissjóður mun kynna samþykktabreytingar sjóðsins vegna sameiningar sjóðanna á opnum kynningarfundi fyrir sjóðfélaga fimmtudaginn
8. október kl. 17:15 á Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta.
Streymt verður frá fundinum.