29. október 2026

Aftur hægt að nýta viðbótarlífeyrissparnað til niðurgreiðslu höfuðstóls húsnæðislána.

Ný lög um ráðstöfun viðbótarlífeyrissparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána hafa verið samþykkt á Alþingi og tóku þau gildi 1. október. Lögin tryggja varanlega heimild til skattfrjálsrar nýtingar viðbótarlífeyrissparnaðar til niðurgreiðslu höfuðstóls húsnæðislána.

Úrræðið og skilyrði fyrir nýtingu

Einstaklingar geta nýtt séreignarsparnað til að greiða mánaðarlega inn á húsnæðislán í allt að 10 ár (120 mánuði). Lánið þarf að vera með veð í  húsnæði sem viðkomandi er með lögheimili í og á að minnsta kosti 30% eignarhlut í. Þeir sem hafa nýtt úrræðið áður en eiga enn ónýttan tíma eiga kost á því að sækja um að nýju.

Hámarksfjárhæð sem hægt er að ráðstafa skattfrjálst inn á húsnæðislán er 500.000 kr. fyrir árið 2026. Fjárhæðin mun taka breytingum í byrjun hvers árs í samræmi við vísitölu neysluverðs.

Hámarksfjárhæðin skiptist þannig:

  • Framlag einstaklings er allt að 4% af launum, að hámarki 333.000 krónur á ári.
  • Framlag launagreiðanda er allt að 2% af launum, að hámarki 167.000 krónur á ári.

Umsókn

Sótt er um á þjónustuvef Skattsins. Tilgreina þarf úr hvaða séreignarsjóði verður greitt og inn á hvaða lán á að borga. Hjón og sambúðarfólk þurfa að sækja um hvort fyrir sig.

Nánari upplýsingar og umsókn er að finna á síðunni  https://island.is/sereignarsparnadur-radstofun-inn-a-husnaedislan

Athugið að þær umsóknir sem berast fyrir 1. desember 2026 munu gilda fyrir mánaðarlegar greiðslur allt árið (afturvirkt frá 1. janúar 2026).

Enn er hægt að sækja um útborgun uppsafnaðs séreignarsparnaðar og ráðstöfun séreignarsparnaðar vegna fyrstu kaupa og fer það einnig fram í gegnum þjónustuvef Skattsins.