15. apríl 2026

Starfsemi SL lífeyrissjóðs árið 2025

Starfsemi SL lífeyrissjóðs gekk vel á árinu 2025. Ávöxtun var ásættanleg í krefjandi markaðsumhverfi og fjárhagsleg staða sjóðsins var áfram sterk. Sem fyrr var áhersla lögð á varfærna fjárfestingarstefnu, góða þjónustu við sjóðfélaga og öfluga áhættustýringu.

Árið markaði jafnframt tímamót í starfsemi sjóðsins þegar nýr framkvæmdastjóri tók við störfum. Guðmundur Stefán Steindórsson tók við starfinu 1. júní 2025 eftir langan og farsælan feril forvera síns, Sigurbjörns Sigurbjörnssonar.

„Árið 2025 var krefjandi á mörkuðum en niðurstaðan sýnir styrk í rekstri og fjárfestingarstefnu sjóðsins,“ segir Guðmundur Stefán Steindórsson, framkvæmdastjóri SL lífeyrissjóðs. „SL lífeyrissjóður hefur byggt upp traustan grunn með góðri langtímaávöxtun og hóflegri áhættutöku. Fram undan er að halda áfram á sömu braut, með áherslu á ábyrgar fjárfestingar, stöðugleika og góða þjónustu við sífellt stækkandi hóp sjóðfélaga og lífeyrisþega.“

Sterk ávöxtun til langs tíma og traust eignasafn

Ávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins var 6,9% á árinu 2025 sem samsvarar 3,1% raunávöxtun. Fjárfestingartekjur námu 20,5 milljörðum króna.

Langtímaárangur sjóðsins er áfram sterkur en meðalraunávöxtun frá 1991 til 2025 er 4,9% , sem er vel yfir 3,5% viðmiði lífeyrissjóða.

Eignasafnið er vel dreift en í árslok voru erlendar fjárfestingar 47,3% af eignum, innlend skuldabréf 41,2% og innlend hlutabréf 6,5% .

Vaxandi lífeyrisgreiðslur og fjölgun lífeyrisþega

Lífeyrisþegum hélt áfram að fjölga og voru þeir 23.509 í árslok 2025, sem er 4,4% aukning milli ára.

Lífeyrisgreiðslur úr samtryggingardeild námu 11,1 milljörðum króna og hækkuðu um 10,7% milli ára.

Hlutfall lífeyris af hreinni eign var 3,7% í árslok , sem endurspeglar aukinn fjölda lífeyrisþega og hækkandi réttindi þeirra.

Stöðug iðgjöld og breiður sjóðfélagahópur

Á árinu 2025 greiddu 13.245 einstaklingar iðgjöld í sjóðinn að fjárhæð 6,8 milljarða króna. Virkir sjóðfélagar voru 7.969 og heildarfjöldi einstaklinga með réttindi hjá sjóðnum 142.739.

Iðgjöld hækkuðu lítillega milli ára eða um 0,6% .

Tryggingafræðileg staða áfram sterk

Tryggingafræðileg staða sjóðsins er innan lögbundinna marka en heildarskuldbindingar voru 2,8% umfram eignir í árslok 2025 .

Staðan er áfram góð og byggir á traustum grunni þar sem langtímaávöxtun og jafnvægi réttinda eru lykilatriði.

Áhersla á stöðugleika og ábyrgar fjárfestingar

SL lífeyrissjóður hefur um árabil lagt áherslu á stöðugleika og ábyrga fjárfestingarstefnu. Sú stefna hélt áfram að vera leiðarljós í starfseminni árið 2025, ásamt því að horft er til sjálfbærni og alþjóðlegra viðmiða í fjárfestingum.

Framtíðarsýn sjóðsins er að halda áfram að byggja á sterkum grunni, tryggja góða langtímaávöxtun og veita sjóðfélögum öruggan lífeyri.