09. júlí 2026

Samrunasamningur undirritaður

Stjórnir SL lífeyrissjóðs og Almenna – Lífsverks lífeyrissjóðs hafa undirritað samrunasamning um tillögu að sameiningu sjóðanna. Verði tillagan samþykkt mun sameinaður lífeyrissjóður hefja starfsemi 1. janúar 2027. Sjóðurinn verður fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins með heildareignir að fjárhæð 1.035 milljarðar króna miðað við stöðu eigna í lok síðasta árs.

Með sameiningu lífeyrissjóðanna er stefnt að því að styrkja grunn góðra lífeyrisréttinda með stærri sjóði sem verður betur í stakk búinn til að mæta auknum kröfum um rekstraröryggi og veita betri þjónustu. Markmiðið er jafnframt að ná fram hagræðingu í rekstri sem getur stuðlað að lægri kostnaði og hærri ávöxtun fyrir sjóðfélaga.

Tillaga um sameiningu og breytingar á samþykktum verður lögð fyrir sjóðfélagafund Almenna – Lífsverks og stjórnarfund SL og fjármála- og efnahagsráðherra í september 2026. Samruni sjóðanna er háður því að nauðsynlegar breytingar verði gerðar á lögum nr. 129/1997 um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum nr. 155/1998 um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda.

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, var viðstaddur undirritun samrunasamnings sjóðanna og undirritaði viljayfirlýsingu um að hann muni beita sér fyrir nauðsynlegum lagabreytingum verði sameiningin samþykkt með þeim hætti sem gildandi lög og samþykktir sjóðanna áskilja.

Meðfylgjandi mynd var tekin við undirritun samrunasamnings SL lífeyrissjóðs og Almenna – Lífsverks.