Hækkun vaxta sjóðfélagalána
Á fundi stjórnar SL lífeyrissjóðs þann 25. ágúst 2026 var ákveðið að hækka vexti allra sjóðfélagalána um 0,25%.
Vaxtabreytingin tekur gildi á eftirfarandi tímum:
- 26. ágúst 2026 fyrir verðtryggð lán með föstum vöxtum.
- 1. október 2026 fyrir verðtryggð lán með breytilegum vöxtum og óverðtryggð lán.
Nánari upplýsingar um gildandi vexti sjóðfélagalána má finna í vaxtatöflu lána á heimasíðu sjóðsins.
Stjórn sjóðsins ákvað jafnframt að fram til áramóta verði ný sjóðfélagalán eingöngu veitt með föstum verðtryggðum vöxtum.
Sjóðfélögum sem óska eftir frekari upplýsingum er velkomið að hafa samband við sjóðinn í síma 510-7400 eða með tölvupósti á sl@sl.is.