Kynningarfundur 8. október 2026 - vegna sameiningar SL lífeyrissjóðs og Almenna-Lífsverks
Aukaársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda (SL lífeyrissjóðs) verður haldinn á Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, 8. október 2026 kl. 17:15.
Á fundinum verður fyrirhuguð sameining SL lífeyrissjóðs og Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðs kynnt, ásamt áhrifum hennar á sjóðfélaga SL og breytingum á samþykktum sjóðsins.
Dagskrá
- Kynning á sameiningunni og áhrifum hennar á sjóðfélaga SL.
- Kynning tryggingastærðfræðings SL á tryggingafræðilegum áhrifum sameiningarinnar.
- Kynning á samþykktabreytingum SL vegna sameiningarinnar.
- Önnur mál.
Á stjórnarfundi SL lífeyrissjóðs þann 29. 09.2026 voru þessar tillögur að samþykktabreytingum samþykktar.
Samþykktabreytingar SL - samþykktar 29.09.2026.pdf
Samþykktir SL - með breytingum sjáanlegum - 29.9.2026.pdf
Streymt verður frá fundinum á vef SL lífeyrissjóðs.
Upplýsingar um sameininguna
Á sameiginlegum upplýsingavef SL og Almenna – Lífsverks geta sjóðfélagar kynnt sér sameininguna og áhrif hennar á réttindi sín.
Stjórn SL lífeyrissjóðs