Frétt um Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda
Þann 29.09.2026 hófst innheimta vangreiddra iðgjalda vegna launatekna og reiknaðs endurgjalds ársins 2025.
Krafan er vegna ógreiddra iðgjalda tekjuársins 2025. Krafan verður til við skattaeftirlit hjá Ríkisskattstjóra en hann samkeyrir álagningarskrána við skrár frá lífeyrissjóðum landsins. Ef ekki hefur verið greitt í neinn lífeyrissjóð ber okkur að sjá um innheimtuna í samræmi við 6. gr. laga nr. 129/1997.
Aukaársfundur Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda (SL lífeyrissjóðs) verður haldinn á Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík, 8. október 2026 kl. 17:15.
Á fundinum verður fyrirhuguð sameining SL lífeyrissjóðs og Almenna-Lífsverks lífeyrissjóðs kynnt, ásamt áhrifum hennar á sjóðfélaga SL og breytingum á samþykktum sjóðsins.
Almenni – Lífsverk og SL lífeyrissjóður hafa opnað sameiginlegan upplýsingavef vegna fyrirhugaðrar sameiningar sjóðanna. Þar má finna upplýsingar um markmið sameiningarinnar, samrunaferlið, helstu dagsetningar og áhrif á sjóðfélaga.
SL lífeyrissjóður heldur opinn kynningarfund um samþykktabreytingar vegna sameiningarinnar 8. október kl. 17:15 á Hilton Reykjavík. Streymi frá fundinum verður aðgengilegt á vefsíðu sjóðsins.