Hlekkur á fréttina er hér.
Stjórnir SL og Almenna – Lífsverks hafa ákveðið að hefja könnunarviðræður um mögulega sameiningu sjóðanna. Markmið viðræðnanna er að kanna hvort sameinaður lífeyrissjóður myndi skapa sterkari grunn fyrir hagstæð og trygg lífeyrisréttindi beggja sjóða, bæta þjónustu við sjóðfélaga og hvort samlegðaráhrif leiði til hagræðingar í rekstri.
Skrifstofa SL lífeyrissjóðs verður lokuð fimmtudaginn 30. apríl vegna árshátíðar starfsfólks. Skrifstofan opnar aftur á hefðbundnum tíma mánudaginn 4. maí. Við minnum á að upplýsingar um réttindi, tilkynningar og umsóknir er hægt að finna á sjóðfélagavefnum. Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið sl@sl.is og starfsfólk mun svara eins fljótt og hægt er.
Starfsemi SL lífeyrissjóðs gekk vel á árinu 2025. Ávöxtun var ásættanleg í krefjandi markaðsumhverfi og fjárhagsleg staða sjóðsins var áfram sterk. Sem fyrr var áhersla lögð á varfærna fjárfestingarstefnu, góða þjónustu við sjóðfélaga og öfluga áhættustýringu.