![](/library/Myndir/SL_Raunavoxtun_.jpg?proc=250x250)
SL með bestu ávöxtun samtryggingardeilda lífeyrissjóða árið 2023
Við höfum getað státað okkur af því að vera sá lífeyrissjóður á landinu sem hefur boðið sjóðfélögum sínum upp á eina bestu langtímaávöxtun í gegnum tíðina. Því er okkur mikil ánægja að greina frá því að sú vegferð gengur enn með ágætum, því SL lífeyrissjóður hefur nú mælst með bestu ávöxtun samtryggingardeilda íslenskra lífeyrissjóða fyrir síðasta ár, 2023, eins og reyndar árið 2022.
Afburða árangur í langtímaávöxtun fyrir sjóðsfélaga. Varfærinn fjárfestir.
Algjörlega hlutlaus lífeyrissjóður gagnvart bönkum og stéttarfélögum
Hefur aldrei þurft að skerða lífeyrisgreiðslur
SL er opinn öllum launþegum og mjög hentugur fyrir sjálfstætt starfandi aðila
Ein hagstæðustu lánakjör á meðal íslenskra lífeyrissjóða
Eini lífeyrissjóður landsins sem er með alþjóðlega ISO vottun 14001 fyrir umhverfisstjórnun
![](/library/Myndir/Einingar/S_Lan-ibudarkaup_830x735px.jpg?proc=BannerRight)
Lán til íbúðarkaupa
Ertu að hugsa um lán til íbúðarkaupa?
SL lífeyrissjóður býður upp á hagstæð húsnæðislán með allt að 75% veðhlutfalli og er þannig í fremstu röð lífeyrissjóða.
![](/library/Myndir/Einingar/SL_Lifeyrisgr_830x735px.jpg?proc=BannerRight)
Lífeyrir til framtíðar
Öll æviskeið
Með greiðslu lögbundins iðgjalds í lífeyrissjóð tryggirðu þér lífeyri við starfslok og afkomu að einhverju leyti ef til áfalls kemur í fjölskyldunni.
![](/library/Myndir/Einingar/SL_Sereignarsparnadur_830x735px.jpg?proc=BannerRight)
Séreignarsparnaður
Þín persónulega eign
Séreignarsparnaður er eitt hagstæðasta sparnaðarform sem völ er á. Hann er þín séreign og mikil kjarabót.Lífeyrissjóðslán
Veldu þína lánaleið
SL lífeyrissjóður býður upp á afar hagstæða vexti á lánum, hvort sem um er að ræða óverðtryggð, verðtryggð eða blönduð lán.
Skoða nánar Reikna lánFréttir frá SL
![Mynd með frétt](/library/Myndir/SL_Raunavoxtun_.jpg)