24. maí 2024

Breytingar á vöxtum sjóðfélagalána

Á fundi stjórnar SL lífeyrissjóðs þann 23. maí sl. var ákveðið að breyta vöxtum sjóðfélagalána. Verðtryggðir fastir vextir verða 3,95% og tekur breytingin eingöngu til nýrra lána sem veitt eru frá og með 24.05.2024. Breytilegir verðtryggðir vextir sjóðfélagalána verða 3,55%. Tekur breytingin gildi þann 1. júlí nk. og hefur áhrif á áður veitt lán með breytilegum vöxtum sem og ný lán. Loks verða óverðtryggðir vextir 9,50% og tekur breytingin gildi 15.06.2024. Óverðtryggðir vextir lækka en verðtryggðir vextir hækka. Er það í samræmi við vaxta- og verðbólguþróun að undanförnu.

Breyting vaxta óverðtryggðra lána hefur áhrif á ný óverðtryggð lán og þau lán sem eru að koma til vaxtaendurskoðunar næstu misserin. Nánari upplýsingar um vexti sjóðfélagalána eru á heimasíðu sjóðsins undir lán og vaxtatafla sjóðsins. Ef sjóðfélagar vilja frekari upplýsingar þá er velkomið að hafa samband við sjóðinn annað hvort í gegnum netfangið sl@sl.is eða í síma 510-7400.


Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir
Mynd með frétt
04.jún. 2024

SL með bestu ávöxtun samtryggingardeilda lífeyrissjóða árið 2023

Við höfum getað státað okkur af því að vera sá lífeyrissjóður á landinu sem hefur boðið sjóðfélögum sínum upp á eina...
Lesa meira
Sjá allar fréttir