02. júní 2017

Skattfrjáls séreignarsparnaður inn á lán – framlengt til 30. júní 2019

Frá því í júlí 2014 hefur þeim sem greiða í séreignarsjóð staðið til boða að ráðstafa greiðslum beint inn á lán vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Úrræðið gilti til þriggja ára en hefur nú verið framlengt með lögum nr. 111/2016 og gildir til 30. júní 2019.

Sjóðfélagar þurfa nú að taka afstöðu til þess hvort að þeir óski eftir framlengingu úrræðisins. Unt er að óska eftir framlengingu á vef ríkisskattstjóra www.leidretting.is. Mikilvægt er að taka afstöðu fyrir júnílok ellegar mun ráðstöfuninni ljúka þá. Með því að framlengja er hægt að hefja ráðstöfun að nýju allt til loka júní 2019.

Sjá nánari upplýsingar í frétt á vef RSK.

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir
Mynd með frétt
22.apr. 2024

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Þann 15. apríl sl. voru yfirlit sjóðfélaga birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL sem má finnu undir þjónustuvefir.
Lesa meira
Sjá allar fréttir