21. mars 2013

Ávöxtun 12,1% á árinu 2012

Stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda hefur staðfest ársreikning sjóðsins fyrir árið 2012.

Nafnávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins á árinu var jákvæð er nam 12,1% og hrein raunávöxtun jákvæð er nam 7,3%. Iðgjöld námu 3,1 milljörðum króna og hækkuðu þau um 8,5% frá fyrra ári.
Lífeyrisgreiðslur námu 2,6 milljörðum króna og hækka um 39,7%. Mest hækka ellilífeyrisgreiðslur.

Séreignardeildin skiptist í tvær ávöxtunarleiðir Söfnunarleið I sem er innlánsreikningur og Söfnunarleið II sem inniheldur blöndu verðbréfa. Nafnávöxtun Söfnunarleiðar I nam 6,4% eða 1,8% raunávöxtun. Nafnávöxtun Söfnunarleiðar II nam 9,7% eða 5,0% raunávöxtun.

Heildareignir sjóðsins í árslok 2012 námu 108,8 milljörðum króna og hækkar um 20,4 milljarða króna eða um 23,1% frá fyrra ári. Helgast það af innri vexti sem og samruna Kjalar lífeyrissjóðs við sjóðinn.

Auglýsingu um afkomu Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda er hægt að nálgast hér

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir
Mynd með frétt
04.jún. 2024

SL með bestu ávöxtun samtryggingardeilda lífeyrissjóða árið 2023

Við höfum getað státað okkur af því að vera sá lífeyrissjóður á landinu sem hefur boðið sjóðfélögum sínum upp á eina...
Lesa meira
Sjá allar fréttir