Tilgreind séreign
Tilgreind séreign, sem áður var hluti af kjarasamningum ASÍ og SA, var lögfest fyrir alla launþega í landinu 1. janúar 2023 og gat þannig orðið hluti af skyldutryggingum sjóðfélaga. Í nýjum lögum um skyldutryggingu og starfsemi lífeyrissjóða var kveðið á um að lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð einstaklings myndi hækka úr 12% í 15,5%. Breytingin nær fyrst og fremst til vinnuveitenda og sjálfstæðra atvinnurekenda, þar sem mótframlag þeirra hækkar úr 8% í 11,5%, en framlag launþega helst óbreytt. Undantekning á þessu er ef kjarasamningur sem starfað er eftir kveður enn á um 8% mótframlag, en líklegt er að það muni breytast við gerð nýs samnings.
Sjóðfélagar hafa val um að setja þetta aukna framlag vinnuveitenda að hluta eða alveg í tilgreinda séreign, eða láta iðgjaldið renna í samtryggingu fyrir aukin lífeyrisréttindi. Sjóðfélagar þurfa að taka sjálfir ákvörðun um hvor leiðin verður valin. Tilgreind séreign er ekki hefðbundin frjáls séreign og lýtur aðeins öðrum lögmálum.
Í hnotskurn:
- Val er um að allt að 3,5% af samtryggingariðgjaldi umfram 12% fari í tilgreinda séreign eða verði hluti af skylduiðgjaldi til aukinna lífeyrisréttinda. Ef ekkert er valið, verður aukið framlag vinnuveitenda sjálfkrafa skilgreint sem hluti af skylduiðgjaldi. Hafa þarf samband við lífeyrissjóðinn ef sjóðfélagi vill velja.
- Velji sjóðfélagi að tilgreind séreign fari ekki í aukin lífeyrisréttindi má úttekt hefjast við 62 ára aldur og verður hún alveg laus við 67 ára aldur (greiðsludreifing).
- Tilgreind séreign er einkaeign sjóðsfélagans og erfist samkvæmt reglum erfðalaga.
- Tilgreind séreign myndar sjálfstæðan sjóð í eigu sjóðfélagans. Hún getur því ekki myndað rétt til ævilangs lífeyris, heldur minnkar sjóðurinn með hverri úttekt þar til hann tæmist um síðir.
- Tilgreindri séreign er ekki heimilt að ráðstafa inn á lán eða í annað sem sérstök úrræði stjórnvalda heimila að ráðstafa frjálsu séreigninni í.
- Tilgreinda séreign er hægt að fá greidda út við örorku eins og frjálsa séreign. Tilgreind séreign myndar ekki lífeyrisrétt til örorku-, maka- eða barnalífeyris, nema hún sé hluti af skylduiðgjaldi.
- Tilgreind séreign verður hluti af lágmarksiðgjaldi í lífeyrissjóð og mun þannig skerða greiðslur Tryggingastofnunar ríkisins (TR). Engar skerðingar verða hjá þeim sem þegar eru komnir á lífeyri hjá TR eða hefja töku um áramótin 2022-2023. Viðbótarséreignarsparnaður (frjáls séreign) sjóðfélaga þar sem hlutur launagreiðenda er 2% og launþega 4% hefur ekki áhrif á lífeyrisgreiðslur frá TR.