Ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán
Sjóðfélögum sem greiða í séreignarsjóð stendur til boða að ráðstafa greiðslum sínum skattfrjálst beint inn á lán vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota. Þessi heimild nær ekki til tilgreindrar séreignar en hana er ekki hægt að nýta til greiðslu inn á lán. Hver umsækjandi verður að skila inn umsókn fyrir sig, hvort sem hann er einhleypur, í hjúskap eða uppfyllir skilyrði til samsköttunar. Umsókn skal fylla út á leidretting.is
Þessi heimild gildir til 31. desember 2024.
Fyrstu íbúðarkaup - stuðningur
Þeim einstaklingum sem kaupa eða byggja sitt fyrsta íbúðarhúsnæði stendur til boða að nýta þegar greidd iðgjöld í séreignarlífeyrissjóð til kaupanna sem og greiða mánaðarleg iðgjöld inn á lán sem tryggð eru með veði í húsnæðinu. Heimilt er að nýta séreign greidda frá 1. júlí 2014 til kaupdags húsnæðis að uppfylltum öllum skilyrðum.
Þessi heimild gildir til 31. desember 2024.
Ef nánari upplýsinga er óskað vinsamlegast hafið samband við Ríkisskattstjóra eða skrifstofuna okkar með tölvupósti á sl@sl.is eða í síma 510 7400.