Launagreiðendur bera ábyrgð á því að skila iðgjöldum í lífeyrissjóð af öllum skattskyldum tekjum sem aflað er á Íslandi. Ef þú ert verktaki eða sjálfstætt starfandi einstaklingur, hvort sem er á þinni persónulegu kennitölu eða kennitölu fyrirtækis, ert þú þinn eigin launagreiðandi og þarft sem slíkur að standa skil á þínum eigin iðgjöldum. Þetta á við um alla vinnandi einstaklinga frá sextán ára aldri til sjötugs.
Leiðbeiningar fyrir verktaka á eigin kennitölu
Ef þú ert að vinna sem verktaki á eigin kennitölu og ert ekki með þitt eigið launakerfi, þá notarðu launagreiðendavefinn okkar til þess að skila inn nauðsynlegum upplýsingum um iðgjaldaskil til sjóðsins. Upplýsingarnar eru sendar inn til sjóðsins í formi skilagreinar.
- Til þess að senda okkur skilagrein þarftu að skrá þig inn á launagreiðendavef sjóðsins (undir flipanum Þjónustuvefir) með rafrænum skilríkjum. Ef upphæðin er svipuð flesta mánuði geturðu skráð nokkra mánuði fram í tímann. Þannig nærðu að greiða reglulega og koma í veg fyrir dráttarvexti.
- Ef fjárhæð tekna er breytileg milli mánaða er best að skrá tekjurnar mánaðarlega þegar upphæð þeirra liggur fyrir. Skilagreinar þarf að senda inn fyrir 10. dag næsta mánaðar á eftir, en greiðsla þarf síðan að berast fyrir lok mánaðarins til þess að forðast megi dráttarvexti.
- Eftir innskráningu á launagreiðendavefinn ferðu í Skilagreinar – Skrá nýja skilagrein rafrænt og velur tímabilið sem um ræðir.
- Farðu svo í Skrá nýja skilagrein og smelltu á Áfram.
- Skráðu þína kennitölu sem launþega og heildarupphæð launa á tímabilinu. Kerfið reiknar þá fjárhæð iðgjalds, mótframlags og framlags í endurhæfnigarsjóð. Síðan smellir þú á Skrá launþega, hakar í Fá sendar kröfur í netbanka ef þú vilt það og velur svo Staðfesta skilagrein.
- Þá kemur upp yfirlitssíða sem rétt er að fara vel yfir. Ef upphæðir og tímabil eru rétt er smellt á Senda skilagrein. Skilagreinin berst þá til okkar og krafa myndast í netbankanum í kjölfarið.
Leiðbeiningar fyrir sjálfstætt starfandi í gegnum fyrirtækjakennitölu
Þeir aðilar sem eru með fyrirtækjakennitölu þurfa að sækja fyrst um veflykil á upphafssíðu launagreiðendavefs með því að smella á Sækja um veflykil. Þaðan þarftu að skrá þig inn á launagreiðendavefinn með kennitölu fyrirtækis og veflykli.
Eftir að innskráningu á launagreiðendavefinn er lokið eru skrefin þau sömu og hér að ofan.