SL lífeyrissjóður fyrir þig
SL lífeyrissjóður er opinn öllum launþegum og sjálfstætt starfandi einstaklingum og er algjörlega óháður bönkum eða stéttarfélögum. Það þýðir að engir aðrir hagsmunir ráða för en að reka sjóðinn eins og best við getum með hagsmuni sjóðfélaga að leiðarljósi.
Þá er næsta spurning hvort að þú sem launþegi hafir val um lífeyrissjóð, en það fer eftir hvaða starfssviði þú vinnur á og/eða hvort og hvaða kjarasamningi þú ert á. Ef ráðningarsamningurinn þinn er ekki byggður á kjarasamningi og þú getur valið um lífeyrissjóð, þá er SL lífeyrissjóður fyrir þig.
Séreignarsparnaður fyrir umfram tekjur eða kaup á fyrstu íbúð
Þú getur líka valið um að greiða í séreignarsparnað eða viðbótarsparnað, en upprunalegur tilgangur þess var að auka við tekjur fólks eftir að eftirlaunaaldri er náð. Í dag er líka hægt að sækja um nýta séreignarsparnaðinn sinn við kaup á fyrstu íbúð eða til að greiða inn á fasteignalán.
Séreignarsparnaður er valfrjáls, til viðbótar við lögbundinn lífeyrissparnað og þín persónulega eign. Launþegar og sjálfstætt starfandi einstaklingar geta greitt allt að 4% af heildarlaunum sínum í séreignarsjóð og fá þá að jafnaði 2% í mótframlag frá launagreiðanda.
Til hvers borga ég í lífeyrissjóð?
Tilgangur lífeyrissjóða er að tryggja öllu vinnandi fólki (sjóðfélögum) lífeyri eftir starfslok til æviloka. Öllu vinnandi fólki í landinu, frá sextán ára til sjötugs er þannig skylt að greiða í lífeyrissjóð sem er sameiginlegur sjóður okkar allra og skapar grunn að fjárhagslegu öryggi á efri árum.
Með því að borga í lífeyrissjóð safnarðu réttindum til að fá ævilangan lífeyri við starfslok, en þú ert líka að tryggja þig og fjölskyldu ef til áfalls skyldi koma sem veldur tekjutapi eða örorku. Þá safnast líka upp réttindi fyrir maka þinn og börn sem tryggir þeim greiðslur ef þú fellur frá.
Af hverju velja SL lífeyrissjóð?
- SL lífeyrissjóður mældist með bestu langtímaávöxtun íslenskra lífeyrissjóða yfir 20 ára tímabil (Sameignardeild - úttekt Verdicta 2018). Meðalraunávöxtun síðustu 20 ára er 4,8% sem er með hæstu ávöxtun yfir lengri tíma hjá íslenskum lífeyrissjóðum (2003-2023).
- SL lífeyrissjóður vinnur eftir varfærinni fjárfestingarstefnu og stefnu um ábyrgar fjárfestingar. SL er fyrsti og eini lífeyrissjóður landsins sem hefur hlotið alþjóðlega vottun BSI á Íslandi samkvæmt ISO 14001:2015 umhverfisstaðlinum, sem er alþjóðlega viðurkennd vottun fyrir þau fyrirtæki sem setja umhverfismál í öndvegi.
- SL lífeyrissjóður er opinn öllum launþegum og sjálfstætt starfandi og er óháður frá bönkum og stéttarfélögum. Ef þú getur valið þér lífeyrissjóð eða ert sjálfstætt starfandi, þá er SL lífeyrissjóður fyrir þig.
- SL lífeyrissjóður býður afar hagstæð lánakjör til íbúðarkaupa eða fyrir framkvæmdir. Veldu þá lánaleið sem hentar þér best.
- SL lífeyrissjóður hefur það helsta markmið að hámarka lífeyrisgreiðslu sjóðfélaga sinna og tryggja þeim bestu lífeyrisréttindi sem kostur er á með ávöxtun iðgjalda og eigna, áhættustýringu og hagkvæmum rekstri. SL hefur aldrei þurft að skerða lífeyrisgreiðslur
Gerast sjóðfélagi Hafa samband við SL