Fjögur + Ellefu og hálft prósent
Öllum launþegum og sjálfstætt starfandi fólki á aldrinum 16 til 70 ára ber skylda til að greiða 4% af launum til lífeyrissjóðs. Samhliða ber vinnuveitanda að greiða að lágmarki 11,5% með framlagi launþega. Við það myndast 15,5% greiðsla til lífeyrissjóðs í samræmi við heildarlaunatekjur.
Sjá nánar lög um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða nr. 129 frá 1997.
Lágmarksframlag launagreiðanda vegna skyldutryggingar er 11,5% og 2% vegna séreignar ef launamaður greiðir í séreign en getur verið hærra samkvæmt kjara- eða ráðningarsamningi. Enn fremur ber launagreiðanda að greiða 0,10% í endurhæfingarsjóð. Sjá nánar lög um um Atvinnutengda starfsendurhæfingu og starfsemi starfsendurhæfingarsjóða, nr. 60 frá 2012.
Hámarksframlag launagreiðanda sem er undanþegið tekjuskatti er 13,5%. Sjá nánar lög um tekjuskatt nr. 90 frá 2003, grein 28.
Númer sjóðsins:
Númer samtryggingardeildar (lögbundin iðgjöld 4% og 11,5%) er: L015
Númer séreignardeildar (valfrjáls viðbótariðgjöld) er: X016
Númer endurhæfingarsjóðs er: R015