Innheimta og ábyrgð lána
Eindagi lána er sá sami og gjalddagi og greiða ber af lánum á gjalddaga. Sé það ekki gert reiknast dráttarvextir frá gjalddaga til greiðsludags.
- Tilkynning/greiðsluseðill* er sendur greiðanda um tíu dögum fyrir gjalddaga.
- Ítrekun er send 5 dögum eftir gjalddaga.
- Lokaaðvörun er send út um 75 dögum frá gjalddaga.
- Hafi ekki verið greitt 90 dögum eftir gjalddaga er krafan send lögfræðingi til innheimtu. Við það bætist verulegur kostnaður við kröfuna.
*Greiðsluseðlar vegna lána eru ekki sendir út nema sérstaklega sé óskað eftir því.
Greiðsluseðill er aðgengilegur í heimabanka greiðanda undir rafræn skjöl og á sjóðfélagavefnum.
Innheimta lána er í samræmi við innheimtulög nr. 95/2008 og reglugerð nr. 37/2009.
Ábyrgð vegna lántöku
Að gefnu tilefni telur stjórn SL lífeyrissjóðs nauðsynlegt að benda á að í ákveðnum tilvikum hafa lántakendur ekki risið undir þeirri greiðslubyrði sem þeir hafa tekist á hendur. Afleiðingarnar geta verið þær að fasteignir sem veðsettar hafa verið vegna lánanna eru seldar á nauðungaruppboði.