Fjárfestingarstefna 2025

Stjórn lífeyrissjóðsins mótar fjárfestingarstefnu og ávaxtar fé sjóðsins með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með tilliti til ávöxtunar og áhættu. Sjóðurinn rekur samtryggingardeild og séreignardeild sem skiptist í þrjár leiðir og inniheldur hver leið sjálfstæða fjárfestingarstefnu.

Samtryggingardeild

Sögulega séð hefur sjóðurinn verið varkár í fjárfestingum og sést það einna best á því að hann hefur aldrei þurft að skerða greiðslur til sjóðfélaga. Meðalraunávöxtun sjóðsins síðustu 20 ár er um 4,4% sem er ein besta langtímaávöxtun lífeyrissjóðs innan lífeyrissjóðakerfisins. Það má því segja að sjóðnum hafi tekist mjög vel til við eitt af meginviðfangsefnum sínum sem er að finna rétta jafnvægið milli ávöxtunar og áhættu þegar kemur að fjárfestingum.

Fjárfestingarstefna samtryggingardeildar sjóðsins fyrir árið 2025 er dregin saman í eftirfarandi töflu.

 

Séreignardeild

Heimilt er að greiða allt að 6% iðgjald til séreignar í lífeyrissjóð af öllum launum og reiknuðu endurgjaldi. Skiptist hlutfallið þannig að launþegi getur greitt allt að 4% en launagreiðandi greiðir 2%. Einnig er heimilt að greiða tilgreinda séreign í séreignardeildina.

Hægt er að velja milli þriggja leiða í séreignardeild sjóðsins.

Ráðstöfun fjármuna og eignasamsetning

Söfnunarleið I

Söfnunarleið I fjárfestir í innlánum, stuttum og meðallöngum skuldabréfum og víxlum útgefnum af ríki og sértryggðum skuldabréfum lánastofnana. Í skuldabréfasafni er horft til skuldabréfa og víxla með stuttan og meðallangan líftíma til að lágmarka sveiflur í ávöxtun. Leiðin hefur heimild til að fjárfesta í hlutdeildarskírteinum sem takmarkast við skammtímasjóði.

Leiðin er hentug þeim sem eru að ávaxta sinn séreignarsparnað til miðlungs og skemmri tíma. Þessi leið hentar einkum þeim sem hafa hafið útgreiðslur eða eru að nálgast lífeyristökualdur. Leiðin inniheldur takmarkaða áhættu sem næst með samsetningu skuldabréfa og innlána. Markmið leiðarinnar er að skila stöðugri langtímaávöxtun og að ná um 1-3% langtíma raunávöxtun.

Hér að neðan má sjá markmið um eignasamsetningu og vikmörk.

 

Söfnunarleið II

Leiðin hentar þeim sem eru að ávaxta sinn séreignarsparnað til miðlungs langs tíma og vilja hóflegar sveiflur í ávöxtun. Stefnt er að því að hlutfall skuldabréfa sé á bilinu 60%-80% og hlutabréfa 20%-40% af safninu þar sem vægi erlendra hlutabréfa er meira en innlendra hlutabréfa.

Markmið leiðarinnar er að skila góðri langtímaávöxtun eða um 2-5% langtíma raunávöxtun. Leiðin gæti hentað þeim sem vilja taka hóflega áhættu og þola sveiflur í ávöxtun til meðallangs og lengri tíma. 

Hér að neðan má sjá markmið um eignasamsetningu og vikmörk.

 

Söfnunarleið III

Leiðin hentar vel þeim sem eru að ávaxta séreignarsparnað sinn til lengri tíma og hafa tímann fyrir sér til að jafna út sveiflurnar og eiga von á að uppskera góða ávöxtun. Hlutfall hlutabréfa og erlendra verðbréfa er hæst í Söfnunarleið III af þeim leiðum sem í boði eru. Stefnt er á að helmingur safnsins sé í hlutabréfum og helmingur í skuldabréfum, en þó að hámarki 60% og að lágmarki 40% í hvora áttina. Markmið leiðarinnar er að skila góðri langtímaávöxtun eða um 3-6% langtíma raunávöxtun með skilvirkri eignadreifingu. 

Hér að neðan má sjá markmið um eignasamsetningu og vikmörk.

 

 

*Fjárfestingarstefnu sjóðsins í heild má nálgast hér