03. nóvember 2023

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Nú hafa yfirlit sjóðfélaga verið birt á Ísland.is og á sjóðfélgavef SL lífeyrissjóðs, sjá nánar hér. Yfirlitin eru eingöngu send út með rafrænum hætti. Ef sjóðfélagar kjósa geta þeir haft samband við sjóðinn og óskað sérstaklega eftir því að fá yfirlitin send á pappír með pósti. Yfirlitin miðast við iðgjöld fyrir tímabilið apríl 2023 til og með september 2023 bæði í samtryggingu og séreign. Jafnframt eru birt yfirlit þeirra sem eiga eldri réttindi í séreign. Á yfirlitunum koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og réttindi viðkomandi til lífeyris frá sjóðnum.

Mikilvægt er fyrir sjóðfélaga að yfirfara sitt yfirlit, ekki síst með það í huga að skoða vandlega hvort öll iðgjöld hafi ekki örugglega skilað sér til sjóðsins, enda eru iðgjöldin grunnur að lífeyrisréttindum hvers og eins.
Mjög mikilvægt er að sjóðfélagar upplýsi sjóðinn sem fyrst hafi iðgjöld ekki skilað sér og þá innan 60 daga annað hvort með því að hringja í síma 510-7400 eða senda tölvupóst á sl@sl.is. Að öðrum kosti geta dýrmæt réttindi tapast.


Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir
Mynd með frétt
22.apr. 2024

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Þann 15. apríl sl. voru yfirlit sjóðfélaga birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL sem má finnu undir þjónustuvefir.
Lesa meira
Sjá allar fréttir