Viðbótarsparnaður Starfsemi Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda skiptist í tvær deildir. Samtryggingardeild og séreignardeild. Til samtryggingardeildar greiða sjóðfélagar lögboðin 4% og 8% samtals 12% iðgjöld. Þau iðgjöld mynda dýrmæt réttindi til elli-, örorku-, maka- og barnalífeyris. Þessu til viðbótar býður sjóðurinn öllum sem það kjósa að greiða viðbótarframlag til sjóðsins. Rennur framlagið inn á sérreikning hvers og eins og myndar persónulega peningalega eign hjá hverjum sjóðfélaga og er góður viðbótargrunnur við trausta samtryggingardeild sjóðsins.
Viðbótarframlagið er bundið ákveðnum skilyrðum varðandi endurgreiðslu þess (sjá nánar 22. gr. samþykkta). Nú er heimilt að leggja 4% til viðbótar lögbundnu 4% framlagi til lífeyrissjóðs af launum og njóta skattfrelsis. Kjósi sjóðfélagar að auka lífeyrisparnað sinn með viðbótarframlagi fylgja almennt viðbótargreiðslur með frá vinnuveitanda. Að auka lífeyrisparnað sinn umfram lögbundin iðgjöld (12%) er því kostur sem enginn ætti að sleppa.
Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is