Lánareglur
1. Lánaréttindi
Lán eru veitt til sjóðfélaga Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda. Lánsréttindi hefur sá sjóðfélagi, sem greitt hefur iðgjöld til sjóðsins annað hvort samtryggingardeild eða séreignardeild.
2. Lánsupphæð, lánstími og kjör
- Lánsupphæð er ótakmörkuð meðan veðrými leyfir.
- Lánstími er 5 - 40 ár og endurgreiðist lán með eigi færri gjalddögum en tveimur á ári. Lánin eru verðtryggð samkvæmt vísitölu neysluverðs til verðtryggingar og eru með jöfnum afborgunum eða jöfnum greiðslum (annuitets lán).
- Hægt er að velja um lán með breytilegum eða föstum vöxtum. Breytilegir vextir skulu vera 0,5% hærri en meðalávöxtun í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands á 2. flokki Íbúðabréfa til 30 ára, þó aldrei lægri en 4,0%. Vextir taka breytingum 15. hvers mánaðar miðað við meðalávöxtun í síðasta almanaksmánuði samkvæmt skrá Kauphallarinnar. Eru þeir ákveðnir af stjórn sjóðsins.
- Fastir vextir eru ákvarðaðir af stjórn sjóðsins á hverjum tíma. Hægt er að breyta vöxtum á lánveitingum með breytilegum vöxtum í fasta vexti gegn hóflegu gjaldi.
3. Umsóknir
Umsókn skal fylgja fasteignamat, brunabótamat og nýtt veðbókarvottorð af eigninni. Ef á undan veðrétti sjóðsins eru önnur áhvílandi lán skulu fylgja umsókninni síðustu greiðsluseðlar viðkomandi lána sem sýna eftirstöðvar, uppreiknaðar með verðbótum og vöxtum. Lánsumsókn skal vera skrifleg. Sjóðfélagalán er einungis veitt gegn veði í eigin íbúðarhúsnæði.
4. Tryggingar
Aðeins er lánað gegn fasteignaveði allt að 65% af fasteignamati viðkomandi eignar, þ.e. lán sjóðsins og uppreiknaðar eftirstöðvar annarra áhvílandi lána mega ekki vera hærri en 65% af fasteignamati og jafnframt innan við 85% af brunabótamati. Ekki eru tekin gild lánsveð. Sjóðurinn áskilur sér rétt til þess að láta meta fasteignir sérstaklega áður en lán er veitt. Meta þarf húseign ef um nýbyggingu er að ræða. Umsókn er ekki tekin til greina nema húseign sé fokheld. Sömu vaxtakjör gilda óháð veðrétti. Skylt er að leggja fram greiðslumat óski sjóðurinn eftir því.
5. Kostnaður
Lántakandi greiðir lántökugjald sem er nú 1%, svo og kostnað við stimplun sem er 1,5% af lánsfjárhæð (greiðist hjá sýslumanni), þinglýsingu, greiðslumat og kostnað við mat á fasteign sé þess þörf. Lántakendur greiða einnig innheimtukostnað af afborgunum skuldabréfa á hverjum gjalddaga.
6. Afgreiðsla lánsumsóknar
Skilyrði fyrir lánsúthlutun er, að umsóknareyðublað sé útfyllt með fullnægjandi hætti. Lánsumsóknir eru afgreiddar eftir því sem fé er fyrir hendi hjá lífeyrissjóðnum. Sjóðurinn áskilur sér rétt til að hafna lánsumsókn sé veðstaða ekki innan veðmarka. |