22. október 2020

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Þann 12.10.2020 voru send út yfirlit til sjóðfélaga og eiga þau að hafa borist sjóðfélögum sjóðsins.  Yfirlitin miðast við iðgjöld fyrir tímabilið mars 2020 til og með september 2020 bæði í samtryggingu og séreign.  Á yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og réttindi viðkomandi til lífeyris frá sjóðnum.

Mikilvægt er fyrir hvern og einn sjóðfélaga að yfirfara sitt yfirlit, ekki síst með það í huga að skoða vandlega hvort iðgjöld hafi skilað sér til sjóðsins, enda eru iðgjöldin grunnur að lífeyrisréttindum hvers og eins.

Berist sjóðfélaga ekki yfirlit ber honum innan 60 daga að hafa samband við sjóðinn annað hvort með því að hringja í síma 510-7400 eða senda tölvupóst á sl@sl.is. 

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir
Mynd með frétt
22.apr. 2024

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Þann 15. apríl sl. voru yfirlit sjóðfélaga birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL sem má finnu undir þjónustuvefir.
Lesa meira
Sjá allar fréttir