17. október 2016

Útsending yfirlita

Nú hafa verið send út yfirlit til sjóðfélaga og eiga þau að hafa borist sjóðfélögum sjóðsins. Yfirlitin miðast við greidd iðgjöld tímabilið mars 2016 – september 2016 bæði í samtryggingu og séreign.

Á yfirlitinu koma fram upplýsingar um skil iðgjalda hvers sjóðfélaga og réttindi hans til lífeyris frá sjóðnum.

Mikilvægt er fyrir hvern og einn sjóðfélaga að yfirfara sitt yfirlit, ekki síst með það í huga hvort iðgjöld hafi skilað sér til sjóðsins, enda eru iðgjöldin grunnur að lífeyrisréttindum hvers og eins.

Berist sjóðfélaga ekki yfirlit ber sjóðfélaga að hafa samband við sjóðinn annað hvort með því að hringja í síma 5107400 eða senda tölvupóst á sl@sl.is.

Fleiri fréttir

Sjá allar fréttir
Mynd með frétt
22.apr. 2024

Útsending yfirlita til sjóðfélaga

Þann 15. apríl sl. voru yfirlit sjóðfélaga birt á Ísland.is og á sjóðfélagavef SL sem má finnu undir þjónustuvefir.
Lesa meira
Sjá allar fréttir