Ávöxtun Söfnunarleið I Söfnunarleið I er innlánsreikningur sem er hentug leið fyrir þá sem eru að taka út lífeyri, eiga stutt í töku hans og þá sem kjósa litla áhættu. Söfnunarleið I er með hæstu mögulega innlánsvexti hvers tíma.
Hægt er að flytja fjármuni á milli leiða rétthöfum að kostnaðarlausu.
Söfnunarleið II Söfnunarleið II er þannig að fjárfest er að jafnaði 80% í skuldabréfum og 20% í erlendum verðbréfum. Lægst getur hluti skuldarbréfa orðið 70%. Ávöxtun leiðar II sveiflast nokkuð frá einum tíma til annars en á að skila hærri ávöxtun til lengri tíma litið, heldur en t.a.m. leið I.
Hægt er að flytja fjármuni milli leiða rétthöfum að kostnaðarlausu.
Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is