Makalífeyrir
Við andlát sjóðfélaga öðlast maki hans rétt til makalífeyris frá sjóðnum. Maki sjóðfélaga telst vera sá eða sú sem var í hjúskap, staðfestri sambúð eða óvígðri sambúð sem jafna má til hjúskapar, enda hafi fjárfélagi ekki verið slitið fyrir andlát.
Ef réttur til makalífeyris stofnast þá er hann greiddur ævilangt út á réttindi sem eru tilkomin fyrir 1. janúar 2005. Réttindi sem eru tilkomin eftir 1. janúar 2005 er greitt út á þau almennt í 48 mánuði og 50% í 36 mánuði. Hefji eftirlifandi maki sambúð að nýju þá falla niður makalífeyrisréttindin.
Auk áunninna réttinda kann maki að eiga rétt á framreikningi. Framreikningsreglur eru þær sömu og í örorkulífeyri. Ef réttur er til framreiknings þá myndast einnig réttur til barnalífeyris. Barnalífeyrir er greiddur fram að 19 ára aldri.
Nánar
Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is