Venjulegt letur Stórt letur Mjög stórt letur




5. september 2010
Upplýsingar um lífeyrismál
Hlutverk lífeyrissjóða
Þriggja stoða lífeyriskerfi
Ellilífeyrir
Makalífeyrir
Barnalífeyrir
Skipting ellilífeyrisréttinda milli hjóna
Réttindi í mörgum lífeyrissjóðum
Skattlagning iðgjalda og lífeyris
Viðbótarlífeyrissparnaður
Mismunandi réttindakerfi
Landssamtök lífeyrissjóða
Gott að vita

Skattfrelsi iðgjalda
Iðgjöld launþega dragast frá skattskyldum tekjum hans og launagreiðandi getur dregið framlag sitt frá skatti.

Skattlagning lífeyris
Réttindi hjá lífeyrissjóðum, hvort sem um er að ræða réttindi til ævilangs ellilífeyris, örorkulífeyris, makalífeyris eða barnalífeyris, eru undanþegin fjármagnstekjuskatti af vaxtatekjum og eignarskatti af lífeyrisréttindum. Lífeyrisgreiðslur eru hins vegar skattlagðar eins og hverjar aðrar vinnutekjur en lífeyrisþegar geta nýtt sér persónuafslátt sinn til að lækka skattana.

Þar sem lífeyrisiðgjöld eru greidd óskattlögð í lífeyrissjóð er komið í veg fyrir tvísköttun lífeyris.

Samspil bóta almannatrygginga og lífeyrissjóða
Einstaklingur sem fær ellilífeyri hjá almannatryggingum getur einnig átt rétt á tekjutryggingu. Fari tekjur ellilífeyrisþega, að undanskildum greiðslum frá Tryggingastofnun, húsaleigubótum og fjárhagsaðstoð sveitarfélaga, ekki yfir ákveðna upphæð, svokallað tekjumark, á hann rétt á óskertri tekjutryggingu.
Skattskyldar tekjur yfir tekjumarkinu, þ. á m. lífeyrir frá lífeyrissjóðum, skerða tekjutryggingu um 45% þeirra tekna sem umfram eru. Helmingur fjármagnstekna skerðir einnig tekjutryggingu á sama hátt. Nánari upplýsingar má fá hjá Tryggingastofnun ríkisins.
Vefslóðin er www.tr.is.

Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is

Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is

Admin Login LS Veflausnir Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright (c) 2010 Söfnunarsjóður Lífeyrisréttinda