Venjulegt letur Stórt letur Mjög stórt letur




5. september 2010
Upplýsingar um lífeyrismál
Hlutverk lífeyrissjóða
Þriggja stoða lífeyriskerfi
Ellilífeyrir
Makalífeyrir
Barnalífeyrir
Skipting ellilífeyrisréttinda milli hjóna
Réttindi í mörgum lífeyrissjóðum
Skattlagning iðgjalda og lífeyris
Viðbótarlífeyrissparnaður
Mismunandi réttindakerfi
Landssamtök lífeyrissjóða
Gott að vita

Þriggja stoða lífeyriskerfi
Íslenska lífeyrissjóðakerfið er byggt upp á þremur meginstoðum í
samræmi við sambærileg lífeyriskerfi í Evrópu og N-Ameríku.
Alþjóðabankinn hefur lagt til að hið svokallaða þriggja stoða kerfi
í lífeyrismálum skuli tekið upp sem víðast. Þessar þrjár stoðir eru:

Fyrsta stoð:
Almannatryggingakerfið
Opinbert lífeyriskerfi með skylduaðild allra landsmanna, sem
greiðir flatan grunnlífeyri eða tekjutengdan lágmarkslífeyri
og er hann fjármagnaður með samtímasköttum. Meginmarkmið
þessa kerfis er tekjujöfnun og samtrygging.

Önnur stoð:
Lífeyrissjóðirnir
Lífeyrissjóðakerfið, sem er skyldukerfi undir opinberu eftirliti
og byggir á fullri sjóðsöfnun í einstaklingsbundnu eða vinnutengdu
sparnaðarkerfi. Meginmarkmið þessa kerfis er sparnaður
til að standa undir ellilífeyri og samtryggingu.

Þriðja stoð:
Viðbótarlífeyrissparnaður
Frjáls einstaklingsbundinn eða vinnutengdur sparnaður með
fullri sjóðsöfnun. Meginmarkmið hans er sparnaður til elliáranna
og einstaklingsbundin réttindi.

Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is

Borgartún 29 | 105 Reykjavík | Sími 510 7400 | Fax 510 7401 | Kt. 450181-0489 | Banki 101-26-19050 | Sameign L015 | Séreign X016 | SL[hjá]SL.is

Admin Login LS Veflausnir Privacy Statement  |  Terms Of Use
Copyright (c) 2010 Söfnunarsjóður Lífeyrisréttinda